Sjóðurinn hefur unnið að umbótum í umhverfismálum
Birta lífeyrissjóður tekur umhverfismál alvarlega og hefur sjálfbærni og umhverfisvernd að leiðarljósi í daglegum rekstri sínum og við fjárfestingar. Árið 2021 hlaut Birta umhverfisvottun í samræmi við ISO 14001 staðaðlinn fyrst lífeyrissjóða á Íslandi.
Sjóðurinn hefur markað sér þá stefnu að auka þekkingu á umhverfisáhrifum starfsemi sinnar og leitast við að draga sem mest úr þeim. Markmiðið er að áhrif umhverfisvitundar birtist í daglegum rekstri sjóðsins, stjórnun hans, ákvörðunum og daglegum störfum starfsfólks. Jafnframt verði dregið úr rekstrarkostnaði sjóðsins.
Birta lífeyrissjóður er aðili að UNPRI, reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar þar sem áskilið er að taka skuli mið af umhverfis- og félagslegum þáttum og góðum stjórnarháttum við fjárfestingarákvarðanir (UFS-viðmið).
Sjóðurinn hefur einnig sett sér markmið tengd stefnumótun sjóðsins við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Ein þriggja stoða sjálfbærrar þróunar er umhyggja fyrir umhverfinu og umhverfisáhrif.
Birta lífeyrissjóður leggur fyrst og fremst áherslu á þessi heimsmarkmið í rekstri sínum.