Markvisst er dregið úr kostnaði þar sem hægt er til að hagræða rekstri
Rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris lækkaði milli ára og var 0,15% á árinu 2021 en 0,16% á árinu 2020. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum var 4,17% á árinu 2021 en 4,12% árið áður. Frá stofnun Birtu lífeyrissjóðs í lok árs 2016 hefur hlutfall rekstrarkostnaðar af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris lækkað úr 0,22% í 0,15%. Sjóðurinn hefur markvisst dregið úr kostnaði þar sem hægt er og eru samlegðaráhrif þess að sameina forvera Birtu lífeyrissjóðs komin fram.
Veirufaraldur Covid-19 hafði sín áhrif á kostnað á árinu 2021 vegna aðlögunar á rekstrarþáttum innan sjóðsins og voru áhrifin til lækkunar ákveðinna kostnaðarliða og til hækkunar annarra.
Í skýringu 7 í ársreikningi má sjá sundurliðun á skrifstofu- og stjórnunarkostnaði sjóðsins.
meðalstaða eigna
Laun og launatengd gjöld voru alls 506 milljónir króna árið 2021 en 464 milljónir króna árið 2020. Stöðugildi voru að meðaltali 28,6 á árinu 2021 en 27,8 á árinu 2020.
Aðkeypt tölvuþjónusta árið 2021 nam 5,3 milljónir króna en var 8,2 milljónir króna árið á undan. Kostnaður við rekstur upplýsingakerfa jókst um 5,1% á milli ára.
Gjöld til umboðsmanns skuldara jukust um 23,3% og eftirlitsgjöld til Fjármálaeftirlitsins drógust saman um 5,8% á milli ára en greiðslur til Landssamtaka lífeyrissjóða drógust saman um 1%.
Annar rekstrarkostnaður nam 117,6 milljónum króna á árinu 2021 samanborið við 113,5 milljónir króna árið 2020 og jókst því um 3,58%.